18 myndir keppa á Stuttmyndadögum 2011

Fréttir

0

18 myndir keppa á Stuttmyndadögum 2011

Forval vegna Stuttmyndadaga í Reykjavík 2011 hefur farið fram. Alls bárust 65 myndir og voru 18 þeirra valdar til að keppa á hátíðinni sem fram fer dagana 15.-16. júní næstkomandi í Bíó Paradís.

Eftirtaldar myndir taka þátt í Stuttmyndadögum 2011:

MYND: LEIKSTJÓRI:
Between María Þórdís Ólafsdóttir
Blæbrigði Anni Didriksen Ólafsdóttir
Boy Eilífur Örn Þrastarson
Drottinn blessi heimilið Jón Tómas Einarsson
Eitt skot Guðni Líndal Benediktsson
Engill Haraldur Sigurjónsson
Freyja Marsibil Sæmundardótttir
In Memoriam Haukur M
Klás Ragnar Snorrason
Moon Into Blood Einar Baldvin
Overman Daníel I. Bjarnason
Shirley Eilífur Örn Þrastarson
The Magnet Gunnar Tryggvason
Tímaleysi Svala Georgsdóttir
Tíminn Þórey Hafliðadóttir
Tvöföld tilvera Snorri Fairweather
Utangarðs Valgeir Gunnlaugsson
Viltu breyta lífi þínu? Erlendur Sveinsson

Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, 100.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 75.000 kr. fyrir annað sætið og 50.000 kr. fyrir þriðja sætið.

Líkt og venja er munu áhorfendaverðlaun verða veitt sérstaklega. Auk þess mun Sjónvarpið sýna þær myndir sem hljóta áðurnefnd verðlaun. Þá verður leikstjóra þeirrar myndar sem hlýtur fyrsta sætið, boðið á Kvikmyndahátíðina í Cannes að ári þar sem myndin tekur þátt í hinu svokallaða Short Film Corner.

Í dómnefnd Stuttmyndadaga eru eftirtaldir: Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi, Hálfdán Pedersen leikmyndahönnuður og Lars Emil Árnason handritshöfundur og leikstjóri.

Comments

There are no comments yet.

© Stuttmyndadagar í Reykjavík eru eign Kvikmyndafélags Íslands. Allur réttur áskilinn.