Úrslit Stuttmyndadaga í Reykjavík 2011

Fréttir

0

Úrslit Stuttmyndadaga í Reykjavík 2011

Sigurvegarar Stuttmyndadaga 2011: Marsibil Sæmundardóttir og Eilífur Örn Þrastarson. Haukur M. sem hlaut 3. verðlaun, var fjarri góðu gamni.

Stuttmyndadagar í Reykjavík voru haldnir í Bíó Paradís þann 15. og 16. júní og lauk með verðlaunaafhendingu. Alls voru sýndar 18 myndir og var hátíðin mjög vel sótt bæði kvöldin. Aðstandendur eru á einu máli um að gæði mynda að þessu sinni hafi verið óvenju mikil gegnumsneytt.

Hrollvekjan Freyja eftir Marsibil Sæmundardóttur hlaut fyrstu verðlaun að þessu sinni. Hér segir frá ungri konu, Freyju, sem er barnshafandi og komin 7 mánuði á leið. Hún og Albert maðurinn hennar hafa keypt stórt hús útá landi og Freyja bíður ein í húsinu eftir að Albert komi með búslóðina þeirra. Eftir nokkra daga er Freyja orðin óróleg, það er eitthvað á seyði í húsinu sem veldur henni áhyggjum. Í umsögn dómnefndar um myndina segir:

“Leikstjóri sýnir gott vald á kvikmyndamiðlinum. Heilsteypt verk þar sem allir þættir kvikmyndarinnar ganga upp, leikur, kvikmyndataka og listræn umgjörð. Frásagnarstíll er hnitmiðaður og myndin heldur áhorfendum föngnum frá fyrstu mínútu.

Önnur verðlaun hlaut Shirley eftir Eilíf Örn Þrastarson, tragíkómedía um unga stelpu reynir að láta pabba sinn hætta að drekka. Í umsögn dómnefndar segir:

“Góð nálgun á erfiðu viðfangsefni. Listræn umgjörð og fallegt myndmál. Myndin sýnir sterkan höfundarstíl leikstjóra.”

Í þriðja sæti lenti In Memoriam eftir Hauk M., drama um ungan mann sem á erfitt uppdráttar eftir sjálfsmorð móður sinnar. Í umsögn dómnefndar segir:

“Persónuleg og áhrifarík mynd, fallegt myndmál í draumkenndum og tregafullum stíl.”

Áhorfendaverðlaunin féllu einnig Freyju í skaut, en að auki veitti dómefndin sérstaka viðurkenningu til mínútumyndarinnar Tímaleysi eftir Svölu Georgsdóttur.

 

Comments

There are no comments yet.

© Stuttmyndadagar í Reykjavík eru eign Kvikmyndafélags Íslands. Allur réttur áskilinn.