Fréttir
-
Úrslit Stuttmyndadaga í Reykjavík 2011
Stuttmyndadagar í Reykjavík voru haldnir í Bíó Paradís þann 15. og 16. júní og lauk með verðlaunaafhendingu. Alls voru sýndar 18 myndir og var hátíðin mjög vel sótt bæði kvöldin. Aðstandendur eru á einu máli um að gæði mynda að þessu sinni hafi verið óvenju mikil gegnumsneytt.
-
Dagskrá Stuttmyndadaga 2011
Hinir árlegu Stuttmyndadagar í Reykjavík fara fram í Bíó Paradís 15.-16. júní. Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá það ferskasta í grasrót íslenskra kvikmynda. Uppskeran í ár þykir sérlega góð, en alls bárust 65 myndir í keppnina og voru 18 valdar til þátttöku. Myndirnar sem taka þátt eru sýndar í þessari röð: MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ KL. 20:00 Tímaleysi (01:00) Leikstjóri: Svala Georgsdóttir. Aldur er afstæður en núið er eilíft. Tvöföld tilvera (15:00) Leikstjóri: Snorri Fairweather. Ungur maður tekur við lítilli útvarpstöð í smábæ út á landi. Brátt áttar hann sig á að hann er lifandi í annars manns tilvist [...]
-
18 myndir keppa á Stuttmyndadögum 2011
Forval vegna Stuttmyndadaga í Reykjavík 2011 hefur farið fram. Alls bárust 65 myndir og voru 18 þeirra valdar til að keppa á hátíðinni sem fram fer dagana 15.-16. júní næstkomandi í Bíó Paradís.
-
64 myndir bárust í Stuttmyndadaga 2011
Alls bárust 64 myndir í Stuttmyndadaga 2011, en það er með því mesta sem borist hefur og er til marks um þá miklu grósku sem ríkir í grasrót íslenskrar kvikmyndagerðar. Dómnefndin, sem skipuð er þeim Guðrúnu Eddu Þórhannesdóttur framleiðanda, Hálfdáni Pedersen leikmyndahönnuði og Lars Emil Árnasyni leikstjóra og handritshöfundi, er nú að störfum og mun kunngera forval sitt þann 6. júní næstkomandi. Stuttmyndadagar 2011 fara fram í Bíó Paradís dagana 15.-16. júní næstkomandi.
-
Stuttmyndadagar 2011 fara fram 15.-16. júní í Bíó Paradís
Hinir árlegu Stuttmyndadagar í Reykjavík fara fram í Bíó Paradís dagana 15.-16. júní næstkomandi. Keppt er um bestu stuttmyndina og verða veitt þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, 100.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 75.000 kr. fyrir annað sætið og 50.000 kr. fyrir þriðja sætið. Frestur til að skila inn myndum rennur út þann 24. maí en nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér. Í dómnefnd Stuttmyndadaga eru eftirtaldir: Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi, Hálfdán Pedersen leikmyndahönnuður og Lars Emil Árnason handritshöfundur og leikstjóri. Líkt og venja er munu áhorfendaverðlaun verða veitt sérstaklega. Auk þess mun Sjónvarpið sýna þær myndir sem hljóta áðurnefnd [...]