Reglur
ALDURSTAKMARK:
Ekkert aldurstakmark er á Stuttmyndadögum. Öllum er heimilt að senda inn myndir bæði áhugamönnum og atvinnumönnum. Athugið að innsendar myndir verða að notast við Íslendinga í lykilstörfum / hlutverkum.
LENGD MYNDA:
Myndir mega ekki vera lengri en 15 mín. Reynslan hefur sýnt okkur að því styttri sem myndirnar eru þeim mun betri eru þær. Það er um að gera að hafa stuttmyndirnar stuttar!
FORMAT:
Smellið hér til að komast í skráningarformið. Þar er að finna tæknilegar upplýsingar og aðrar leiðbeiningar. Munið að hlaða niður eyðublaði (Word) og fylla út allar upplýsingar. Innsending er ekki gild nema eyðublað fylgi.
SKILAFRESTUR:
Síðasti dagur til að skila myndum er 24. maí 2011 (kl 22:00).
SÝNINGARTÍMI:
Þær myndir sem dómnefnd velur til þáttöku á Stuttmyndadaga verða sýndar í Bíó Paradís 15.-16. júní 2011.
SJÓNVARPSÞÁTTUR:
Verðlaunamyndirnar verða sýndar í sérstökum Stuttmyndadagaþætti á RÚV. Með því að senda inn verk í Stuttmyndadaga í Reykjavík 2011 skuldbindur þú þig til að heimila sýningu á mynd þinni í þessum þætti, án frekari greiðslu.
VERÐLAUN:
1. sæti: Leikstjóri vinningsmyndarinar fer með myndina til Cannes innifalið er flug og gisting ásamt sæti í Short Film Corner á hátíðinni, myndin fær að auki 100.000 kr í peningum.
2. sæti: 75.000 kr.
3. sæti: 50.000 kr.