Saga Stuttmyndadaga í Reykjavík
Stuttmyndadagar í Reykjavík fóru fyrst fram 1992 og hafa frá upphafi notið mikilla vinsælda og þá sérstaklega á meðal ungs fólks og þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð. Hátíðin er keppni um bestu stuttmyndina. Hún fór fram árlega til 2002, en eftir það féll hún niður til ársins 2007. Síðan þá hefur hún farið árlega fram og verður svo áfram.
Meðal þeirra sem sýnt hafa sín fyrstu verk á Stuttmyndadögum í gegnum tíðina eru;
- Árni Ólafur Ásgeirsson (Blóðbönd, Brim)
- María Sólrún Sigurðardóttir (Dive Into the Earth’s Crust, Jargo)
- Rúnar Rúnarsson (Síðasti bærinn, Smáfuglar, Eldfjall)
- Ragnar Bragason (Börn, Foreldrar, Vaktaseríurnar, Bjarnfreðarson)
- Róbert Douglas (Íslenski draumurinn, Strákarnir okkar, Maður eins og ég)
- Grímur Hákonarson (Bræðrabylta, Sumarlandið)
- Reynir Lyngdal (Hamarinn, Okkar eigin Osló)
- Gunnar B. Guðmundsson (Astrópía, Gauragangur)
1992
Á fyrstu Stuttmyndadögunum voru 28 myndir sýndar, þar á meðal Sjúgðu mig Nína eftir Óskar Jónasson, Uppfinningamaðurinn og Happy Birthday eftir Júlíus Kemp, Hundur hundur eftir Sigurbjörn Aðalsteinsson, Bonni & Bonnie and Cindeo eftir Steinþór Birgisson og Spurning um svar eftir Sævar Guðmundsson og Filmumenn frá Akureyri. Þetta árið var engin samkeppni og engin verðlaun veitt.
1993
Sýndar voru 40 myndir og Reykjavíkurborg gaf verðlaunafé til þriggja bestu myndanna.
1. verðlaun: Athyglissýki (Reynir Lyngdal og Arnar Jónasson)
2. verðlaun: Oh Bodo (María Sólrún Sigurðardóttir)
3. verðlaun: Gaddavír í gelgjunni (Róbert Douglas)
1994
46 myndir voru sýndar þetta árið.
1. verðlaun: Matarsýki (Reynir Lyngdal og Arnar Jónasson)
2. verðlaun: Some Girls Are Bigger than Others (Gunnar B. Guðmundsson, Helgi Kristinsson, Sigurður Einarsson, Sævar Hilmarsson og Pétur Thomsen)
3. verðlaun: Liquid 2 (Höskuldur Eyjólfsson og Trausti Traustason)
1995
Á fjórðu Stuttmyndadögunum voru 50 myndir sýndar.
1. verðlaun: Two Little Girls and a War (María Sólrún Sigurðardóttir)
2. verðlaun: Einelti (Gunnar B. Guðmundsson og Guðmundur Karl Sigurdórsson)
3. verðlaun: Ég elska þig Stella (Ragnar Bragason)
1996
30 myndir sýndar.
1. verðlaun: Helvítis Reykjavík (Róbert Douglas)
2. verðlaun: Anna (Jón Páll Halldórsson og Torfi Frans Ólafsson)
3. verðlaun: Upp úr þurru (Hafliði Hörður Hafliðason, Hrafn Leó Guðjónsson, Davíð Örn Sigþórsson og Jakob Ágústsson)
1997
Um 50 myndir sýndar.
1. verðlaun: The Last Two Martians on Mars (Ragnar Brynjúlfsson); Lífsg(æði) (Arnaldur Máni Finnsson)
2. verðlaun: Notkun farsíma bönnuð (Ásvaldur Kristjánsson)
3. verðlaun: Guð er góður (Bjarni Þór Pétursson)
1998
33 myndir sýndar.
1. verðlaun: Lúsífer (Þrándur Jensson)
2. verðlaun: Ísland er draumurinn (Ingibjörg Magnúsdóttir og Róbert Douglas)
3. verðlaun: Miranda (Margrét H. Gústafsdóttir)
1999
60 myndir sýndar.
1. verðlaun: Slurpinn & Co (Katrín Ólafsdóttir og Reynir Lyngdal)
2. verðlaun: Kókó (Gísli Darri Ólafsson)
3. verðlaun: Maður undir áhrifum (Róbert Douglas og Höskuldur Schram)
2000-2006
Upplýsingar vantar um sigurvegara áranna 2000, 2001 (76 myndir, þar af um helmingur erlendur) og 2002 en unnið er að því að grafa þær upp. Hátíðin féll síðan niður 2003-2006 en þráðurinn tekinn upp aftur 2007.
2007
um 60 myndir sýndar.
1. verðlaun: In the Woodfield (Kjartan Ingvarsson og Lars Skjelbrei)
2. verðlaun: Tími hugans (Dögg Mósesdóttir)
3. verðlaun: A Helping Hand (Tómas Jóhannsson)
Áhorfendaverðlaun: Ekki er allt sem sýnist (Árni Beinteinn Árnason)
Dómnefnd: Lárus Ýmir Óskarsson, Ari Gísli Bragason, Ásgrímur Sverrisson.
2008
15 myndir sýndar.
1. verðlaun: Hux (Arnar Már Brynjarsson)
2. verðlaun: Monsieur Hyde (Vera Sölvadóttir)
3. verðlaun: Post it (Hlynur Pálmason)
Áhorfendaverðlaun: Uniform Sierra (Sigríður Soffía Níelsdóttir)
Dómnefnd: Marteinn Þórsson, Gunnar B. Guðmundsson, Jóhann Ævar Grímsson.
2009
19 myndir sýndar.
1. verðlaun: Idioma vo et va (Ian Menoyot)
2. verðlaun: Epik Fail (Ragnar Agnarsson)
3. verðlaun: Catatonic (Einar Baldvin)
Áhorfendaverðlaun: The Notion of Immanent Causation (Óskar Örn Arnarson)
Dómnefnd: Silja Hauksdóttir, Steingrímur Dúi Másson, Ólafur H. Torfason.
2010
22 myndir sýndar.
1. verðlaun: Áttu vatn? (Haraldur Sigurjónsson)
2. verðlaun: Sykurmoli (Sara Gunnarsdóttir)
3. verðlaun: Þyngdarafl (Logi Hilmarsson)
Áhorfendaverðlaun: Ofurkrúttið (Jónatan Arnar Örlygsson og Grímur Björn Grímsson)
Dómnefnd: Vera Sölvadóttir, Baldvin Z., Nanna Kristín Magnúsdóttir.